Myndir mánaðarins, nóvember, 2019 - VOD
15 Myndir mánaðarins Þeir Justin Long og Sam Rockwell féllust í faðma fyrir ljósmyndarann þar sem þeir hittust á forsýningu myndarinnar Jojo Rabbit eftir Taika Waititi í New York 19. október. Gamandrama 116 mín VOD 7. nóvember Phil er tannlæknir sem glímt hefur við þunglyndi í nokkur ár oger haldinnmiklum lífsleiða. Þegar uppáhaldsviðskiptavinur hans fremur skyndilega sjálfsmorð fyllist Phil óstjórnlegri löngun til að vita út af hverju og hefur því sína eigin rannsókn. Allt frá því að hinn geðugi Michael Fisk settist fyrst í stólinn hjá Phil hefur hann verið í miklum metum hjá honum enda fyrirmyndarkúnni sem hélt tönnunum hreinum og virtist geisla af lífshamingju og innri orku. Fréttirnar af sjálfsmorði hans koma því Phil verulega á óvart enda getur hann ekki ímyndað sér hvaða ástæður gætu hafa legið þar að baki. Að því verður hann hins vegar að komast og fyrir utan að lesa lögregluskýrsluna ákveður hann að kynnast nánustu fjölskyldu Michaels í von um að finna einhver svör við gátunni ... Það sem undir býr Aðalhlutv.: Greg Kinnear, Emily Mortimer, Jay Duplass, Bradley Whitford, Luke Wilson, Robert Forster og Megan Charpentier Leikstjórn: Greg Kinnear Útgefandi: Sena Punktar ............................... l Phil er fyrsta mynd Gregs Kinnear sem leikstjóra og er byggð á bókinni Philosophy of Phil eftir rithöfundinn Stephen Mazur sem skrifaði einnig handritið. HHHH - FilmThreat HHH - Wall Street Journal 8. nóvember 90 mín Íslensk talsetning Útgefandi: Myndform VOD Teiknimynd Þegar einn af vitringunum þremur hverfur sporlaust kemur það í hlut álfa- stelpunnar Snæfríðar að finna hann. Málin vandast verulega þegar fleiri persónur sem tengjast jólunum taka að hverfa og það verður ljóst að sjálf jólahátíðin er í hættu ... nema Snæfríði takist að handsama hinn seka! Snæfríður snara bjargar jólunum er stórskemmtileg og fjörug spænsk teiknimynd sem gerist á hinum töfrandi stað Arbolié á Norðurpólnum þar sem allar helstu persónurnar sem tengjast jólahátíðinni í vestrænum jólasiðum og jólasögum búa saman í sátt og samlyndi þótt vissulega komi upp ágreiningur öðru hverju. Þegar einn af vitringunum þremur hverfur dag einn sporlaust kemst Snæfríður að því að hinn vanstillti Monopolish, sem hafði verið gerður útlægur frá Arbolié, ber ábyrgðina, en hann hefur fundið upp tækni sem breytir jólapersónunum í auglýsingaspjöld og ætlar öllum sem búa í Arbolié þau örlög. Við það verður auð- vitað ekki unað og því verður Snæfríður að taka til sinna ráða hið snarasta ... Snæfríður snara bjargar jólunum Phil – Snæfríður snara bjagar jólunum
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=