Myndir mánaðarins, nóvember, 2019 - VOD

20 Myndir mánaðarins 1% Will Smith skellti sér á frumsýningu myndar- innar Gemini Man í Tapei á Taívan 21. október ásamt framleiðandanum Jerry Bruckheimer og leikstjóranum Ang Lee, en sá síðastnefndi er einmitt fæddur og uppalinn á Taívan. Alfre Woodard og Jason Momoa gerðu að gamni sínu á frumsýningu fyrsta þáttar sjón- varpsseríunnar See 20. október í Los Angeles, en auk þeirra og Sylviu Hoeks leikur Hera Hilmarsdóttir stórt hlutverk í þeim þáttum. Þau Shailene Woodley og Callum Turner voru stödd á Spáni 15. október þar sem verið var að taka upp atriði í myndina The Last Letter from Your Lover sem er byggð á samnefndri bók Jojos Moyes og er í leikstjórn Augustine Frizzell. 15. nóvember 132 mín Aðalhlutv.: Ryan Corr, Abbey Lee, Simone Kessell og Josh McConville Leikstjórn: Stephen McCallum Útg.: Myndform VOD Spenna/hasar Þegar Knuck, fyrrverandi leiðtogi mótorhjólagengisins Copperheads, er látinn laus úr fangelsi eftir þriggja ára afplánun lendir hann fljótlega upp á kant við eftirmann sinn, Paddo, enda hafa þeir gjörólíka sýn á tilgang gengisins og framtíð þess. Afleiðingarnar verða barátta upp á líf eða dauða. 1% , sem er líka nefnd One Percent og Outlaws , er fyrsta mynd ástralska leikstjórans Stephens McCallum og segir sígilda sögu um baráttu hins góða og hins vonda en í öðruvísi búningi en flestir eru vanir. Deilur þeirra Knucks og Paddos snúast um hvaða stefnu gengið á að taka því á meðan Paddo vill hafa starfsemina innan ramma laganna gefur Knuck lítið fyrir það. Og framundan er afdrifaríkt uppgjör ... Hvað er hið rétta? Ryan Corr leikur klúbbleiðtogann Paddo sem lendir á milli steins og sleggju þegar fyrrverandi leiðtogi, Knuck, losnar úr fang- elsi og krefst þess að fá aftur völdin. l Myndin var tilnefnd til Áströlsku kvikmyndaverðlaunanna (AACTA), fyrir besta leik í aðalhlutverkum karla og kvenna (Ryan Corr og Abbey Lee), besta leik í aukahlutverkum karla og kvenna (Josh McConville og Simone Kessell) og fyrir besta handrit, en það skrifaði Matt Nable, sá sami og skrifaði handrit verðlaunamyndarinnar The Final Winter árið 2007. Matt leikur einnig annað af aðalhlutverkum myndarinnar, hörkutólið Knuck. l Sögu myndarinnar og andrúmslofti hefur verið líkt við sjónvarpsþættina Sons of Anarchy sem nutu mikilla vin- sælda á árunum2008 til 2014. Þeir sem kunnu vel að meta þá ættu ekki að verða fyrir vonbrigðummeð 1% . Punktar ..................................................................

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=