Myndir mánaðarins, desember 2019 - VOD

12 Myndir mánaðarins Fast & Furious: Hobbs & Shaw Ekkert gefið eftir ... Aðalhlutverk: Dwayne Johnson, Jason Statham, Idris Elba, Vanessa Kirby, Helen Mirren, Eddie Marsan, Eiza González, Teresa Mahoney og Cliff Curtis Leikstjórn: David Leitch Útgefandi: Myndform 129 mín 5. desember Tveimur árum eftir atburðina í The Fate of the Furious þurfa erkióvinirnir Luke Hobbs og Deckard Shaw að leggja persónu- lega óvild sína hvor í annars garð til hliðar og snúa þess í stað bökum saman í baráttu við sameiginlegan óvin, og reyndar óvin alls mannkyns, hinn gríðarlega öfluga Brixton Lore. Það leikur enginn vafi á að þessi „hliðarmynd“ í Fast & Furious -serí- unni mun gera það gott þegar hún kemur á DVD enda er hér á ferð- inni hin besta afþreying. Hér eiga sviðið þeir Luke Hobbs ogDeckard Shaw sem eru sannarlega engir perluvinir eftir fyrri viðskipti. Auk þeirra kynnumst við nú systur Deckhards, Hattie, sem er heldur ekkert lamb að leika sér við, og bræðrum Lukes sem einnig eru hver öðrum öflugri. Saman leggur þessi vaski hópur til atlögu við hinn genabreytta Brixton Lore sem er ekki bara sterkur og snjall heldur ræður yfir her hryðjuverkamanna. Búiðykkur undir hasar oggríneins og það gerist best, stórskemmtileg áhættuatriði og toppskemmtun! Fast & Furious: Hobbs & Shaw Gaman / Hasar Black Adam. Veistu svarið? Dwayne Johnson er með ýmislegt á prjónunum, eins og venjulega, þ. á m. hlutverk ofurhetju í tólftu myndinni í DC Comics-ofurhetjuveröldinni sem verður, ef áætlanir ganga eftir, frumsýnd eftir tvö ár, þ. e. í desember 2021. Hvað heitir sú ofurhetja? l Leikstjóri myndarinnar er David Leitch sem var m.a. meðleikstjóri fyrstu John Wick -myndarinnar og leikstýrði síðan Atomic Blonde og Deadpool 2 . Handritshöfundur er hins vegar Chris Morgan sem skrifað hefur handrit allra Fast & Furious -myndanna frá og með Tokyo Drift . Aðaltöffararnir þrír í Hobbs & Shaw : Jason Statham sem leikur fyrrverandi sérsveitarmanninn og nú málaliðann Deckard Shaw, Dwayne Johnson sem leikur alríkislögreglumanninn Luke Hobbs og Idris Elba sem leikur fyrrverandi MI6-njósnarann Brixton Lore sem nú er leiðtogi hryðjuverkamanna og er á höttunum eftir banvænni veiru sem getur þurrkað út allt mannkynið eins og það leggur sig. Punktar .................................................... Það er óhætt að fullyrða að þeir Hobbs og Shaw eigi eftir að sjá það svart í baráttunni við Brixton Lore sem ræður yfir ofurkröftum.  - SanFranciscoChronicle  1/2 - The Telegraph  1/2 - Empire  1/2 - Film Threat  1/2 - Slant  1/2 - L.A. Times  1/2 - IGN  1/2 - H. Reporter DVD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=