Inception getraun!

Vilt þú vinna miða á Inception-forsýninguna okkar? Þá er um að gera fyrir þig að á kunnáttu þína á Christopher Nolan-myndum. Í sólarhring ætla ég að halda smá leik þar sem ég gef mönnum séns á því að vinna sér inn tvo boðsmiða á sýninguna.

Ég ætla ekk að flækja þetta neitt. Hér fyrir neðan eru 5 spurningar sem allar tengjast myndum leikstjórans.

1. (NOLAN) Hver var fyrsta mynd leikstjórans í fullri lengd?

2. (INSOMNIA) Hvað hét persóna Al Pacino?

3, (THE PRESTIGE) Hver lék Nicola Tesla?

4. (THE DARK KNIGHT) Hver er fyrsta setning Jókersins í myndinni? Ég spyr um setninguna þegar hann tekur af sér grímuna.

5. (MEMENTO) Hvað stóð fyrir aftan Polaroid ljósmyndina hans Teddys (Joe Pantoliano)? Já ég vil allan textann.

Sendið mér svörin á tommi@kvikmyndir.is. Ég mun síðan draga úr réttum svörum um miðnætti. Fylgist vel með póstinum ykkar. Gangi ykkur vel.

T.V.