Depp enn með gulltönn Sparrows

Johnny Depp leikur ásamt Angelinu Jolie í myndinni The Tourist sem frumsýna á í Bandaríkjunum föstudaginn 10. desember nk. Hann segist sjaldan hafa kynnst öðrum eins ágangi Paparazzi ljósmyndara og þegar hann var í Feneyjum á Ítalíu að taka myndina ásamt Jolie.
Í þessu viðtali þá er hann spurður að því hvort það hafi haft truflandi áhrif á hann, ásamt því sem hann er spurður út í afhverju hann kýs að búa í Evrópu, og afhverju hann er ennþá með gulltönnina sem Jack Sparrow er með í Pirates of the Carribbean.