Ný stikla úr Dylan Dog – Aníta Briem í stóru hlutverki

Næsta mynd leikarans Brandon Routh, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið Ofurmanninn sjálfan í Superman Returns, ber titilinn Dylan Dog: Dead of Night, en stikla úr myndinni hefur lent á netinu. Myndin er byggð á geysivinsælli ítalskri myndasögu og fjallar um einkaspæjara sem sérhæfir sig í yfirnáttúrulegum málum.

Íslendingurinn Aníta Briem hefur heldur betur verið að gera það gott undanfarið, en hún fer einmitt með stórt hlutverk í myndinni. Leikur hún unga dömu sem leitar til Dylans þegar faðir hennar er myrtur og saman reyna þau að koma til botns í málinu. Ekki er vitað fyrir visst hvenær Dylan Dog: Dead of Night kemur út hérlendis, en hún kemur í kvikmyndahús vestanhafs í lok apríl.

– Bjarki Dagur