Jon Voight í tómu tjóni

Eðalleikarinn Jon Voight, sem er stoltur faðir ruglukollunnar Angelina Jolie, er að gera einhver stærstu mistök á öllum sínum mistæka ferli. Hann ætlar í alvörunni að leika í, og framleiða framhaldið af hinni ömurlegu Baby Geniuses sem A) var ömurleg B) floppaði feitt í miðasölunni. Mun þessi nýja ( og frábæra ) framhaldsmynd hafa undirtitilinn SuperBabies og hefur Voight fengið skrípildið Scott Baio til að leika á móti sér í myndinni. Á einhvern hátt segir manni svo hugur að fastlega megi gera ráð fyrir því að kúk og piss brandarar eigi eftir að skipa stóran sess í myndinni.