SMS frá Chow – sjáðu fyrsta atriðið úr Hangover 3!

Ein af stórmyndum sumarsins er án efa Hangover 3 sem kemur í bíó 31. maí á Íslandi.

Nú hefur fyrsta atriðið úr myndinni verið birt á facebook síðu myndarinnar og má sjá það hér fyrir neðan. Þar fyrir neðan er nýtt plakat með mynd af hana, en eins og menn hafa séð í stiklum fyrir myndina þá kemur hanaslagur við sögu í myndinni, enda hefur Leslie Chow núna snúið sér að því sporti:

Eins og sést í þessu atriði þá er þetta atriðið sem kemur stuttlega fyrir í nýlegri stiklu þar sem þrír af aðalleikurunum ræða um SMS frá Leslie Chow, sem aðalþorparinn sem John Goodman leikur, vill að þeir finni fyrir sig.

Handrit myndarinnar skrifar leikstjórinn Todd Phillips ásamt Craig Mazin. Myndin gerist tveimur árum eftir atburðina í The Hangover Part II. Alan er illa á sig kominn eftir að hann missir föður sinn og vinir hans sjá að vinur þeirra þarfnast hjálpar þeirra og reyna að koma honum í meðferð á endurhæfingarstöð. Áætlunin fer úrskeiðis þegar maður að nafni Marshall (Goodman) rænir Doug og sendir Úlfagengið (e. the Wolf Pack) að leita að Leslie Chow.

The Hangover Part III kemur í bíó á Íslandi þann 31. maí nk. en í Bandaríkjunum viku fyrr, eða 24. maí.