Samuel L. Jackson kynnir Kite

Kite_SamJacksonSamuel L. Jackson er þekktur fyrir allt annað en leti og hefur hann leikið í tug kvikmynda á síðustu fimm árum. Að þessu sinni hefur hann tekið að sér hlutverk í Kite, sem er gerð eftir samnefndum teiknimyndasögum.

Þeir sem þekkja ekki til teiknimyndasögunnar, þá fjallar hún um táningsstelpu sem leitar hefnda fyrir foreldra sína, sem voru myrtir.

Í fyrstu átti leikstjóri Snakes On A Plane, David R. Ellis, að leikstýra myndinni, en hann lést á síðasta ári. Ralph Ziman tók við sætinu. Með önnur hlutverk fara Inda Eisley, Callan Mcauliffe, Cleo Rinkwest, Russel Savadier og Keci Eatock.

Í þessu rúma 9 mínútna myndskeiði kynnir Samuel L. Jackson myndina og svo á eftir er sýnd stikla.