Klúr stikla úr Sex Tape

Jason Segel og Cameron Diaz leika saman á ný í kvikmyndinni Sex Tape. Jake Kasdan leikstýrir og kom þríeykið síðast saman við kvikmyndina Bad Teacher, þar sem Diaz lék aðalhlutverkið.

sex-tape-movie

Í þetta skipti leika þau Segel og Diaz par sem áttu í fyrstu mjög ástríðufullt samband. Tíu árum og tveim krökkum síðar þá hefur ástarlífið farið ört minnkandi. Til þess að krydda það upp á nýtt ákveða þau að gera kynlífsmyndband, en seinna komast þau að því að myndbandið hafi farið inn á spjaldtölvur sem þau gáfu vinum og vandamönnum í gjöf.

Fyrsta stiklan úr myndinni var opinberuð í dag og má þar sjá klúr atriði með Diaz og Segel.