Seagal gagnrýnir Liam Neeson

Steven Seagal hefur gagnrýnt Írann Liam Neeson og segir hann ekki vera alvöru hasarmyndaleikara. steven seagal

Seagal, sem er frægur fyrir slagsmálahæfileika sína, telur að það þurfi ekki lengur alvöru „stríðsmenn“ í nútíma hasarmyndir vegna þess að tæknibrellurnar eru orðnar svo háþróaðar.

„Það er hægt að búa til kvikmyndir á ýmsa vegu nú til dags. Menn nota mikið af tæknibrellum. Fólk þarf ekki að vera hasarhetjur eða sérfræðingar í sjálfsvarnarlistum, það mætir bara á staðinn og lætur aðra eyða peningum og tíma í tæknibrellur,“ sagði hinn 62 ára Seagal við The Big Issue.

Seagal, sem lék í The Patriot og Under Siege, bætir við: „Sjáið Liam Neeson. Hann getur ekki slegist, hann er langt í frá einhver hasarmyndagaur en samt leikur hann í hasarmyndum, þannig að það segir sína sögu. Hann er frábær dramatískur leikari. En er hann hasarmyndagaur? Nei. Er hann góður slagsmálamaður eða stríðsmaður? Nei, alls ekki,“ sagði Seagal.