Ný stikla úr Borgríki 2

Borgriki2_Poster_sNý stikla úr íslensku spennumyndinni Borgríki II – Blóð hraustra manna var frumsýnd í dag.

Myndin fjallar um Hannes, metnaðarfullan lögreglumann, sem lendir á hálum ís þegar hann hefur rannsókn á yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar eftir ábendingu frá fyrrverandi glæpaforingja sem situr inni.

Með helstu hlutverk í myndinni fara Ingvar Eggert Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Darri Ingólfsson.

Myndin verður frumsýnd þann 17. október. Hér að neðan má sjá nýjstu stikluna úr myndinni.

BORGRÍKI 2 from Olaf de Fleur on Vimeo.