James Bond hús logar

THE GHOST WRITERSeint í gærkvöldi, miðvikudagskvöld, kviknaði í heimili James Bond leikarans Pierce Brosnan í Malibu í Flórída.

Eldurinn átti upptök sín í bílskúrnum samkvæmt KABC, en slökkviliðið kom fljótt á vettvang og réði niðurlögum eldsins.

Engin slys urðu á fólki.

Vitni setti þessar myndir af eldsvoðanum á Youtube:

Brosnan, sem er 61 árs gamall, er þekktastur fyrir að leika James Bond í myndunum “Die Another Day,” “The World Is Not Enough” og “GoldenEye.”

Síðan þá hefur hann leikið í fjölda mynda, eins og t.d. “The Ghost Writer” og “November Man.”