Lesblindur heldur með Chelsea

Þessar stórmerkilegu staðreyndir eða þannig, birtust fyrst í janúarhefti Mynda mánaðarins.

Skírnarnafn norður-írska leikarans Ciaráns Hinds er framborið „Kíran“. Hann á dóttur sem heitir Aoife en það er framborið „Í-fa“ og er írska útgáfan af nafninu Eva.

cierán hinds

John Hawkes hefur enga formlega menntun sem leikari og hóf ekki leikferilinn fyrr en 45 ára að aldri þegar honum var boðið að leika persónuna Sol í Deadwood-þáttunum.

Sonur þeirra Robin Wright og Seans Penn heitir Hopper Jack í höfuðið á Dennis Hopper og Jack Nicholson.

Þau Emily Blunt og söngvarinn Michael Bublé bjuggu saman í þrjú ár frá 2005 til 2008. Sjálf er Emily með afar góða alt-söngrödd. Föðurbróðir hennar, Crispin Jeremy Rupert Blunt, er þingmaður breska íhaldsflokksins.

Benicio Del Toro er einn af þremur leikurum frá Púertó Ríkó sem unnið hafa Óskarsverðlaun. Hin eru Rita Moreno og José Ferrer.

Thomas Brodie-Sangster og Hugh Grant eru frændur. Langömmur þeirra í móðurætt voru systur.

Anthony Mackie ætlaði að verða verkfræðingur áður en hann ákvað að snúa sér alfarið að leiklist. Hann er áhugamaður um fallhlífarstökk.

Emma Thompson hefur tvisvar hlotið Óskarsverðlaun, 1993 og 1996, og fyrir tilviljun var það Anthony Hopkins sem afhenti henni verðlaunin í bæði skiptin. Inn á milli, eða 1994 voru þau bæði tilnefnd til Óskars fyrir leik í myndinni Remains of the Day.

alicia vikanderAlicia Vikander stundaði ballettnám við Konunglega sænska ballettskólann en varð að hætta vegna ökklameiðsla.

Guy Ritchie er lesblindur, hætti í skóla fimmtán ára og er með svarta beltið í júdó. Hann heldur með Chelsea.

Michael Caine heitir í raun Maurice Joseph Micklewhite. Hann barðist í Kóreustríðinu og leigði síðan íbúð í London með Terence Stamp á meðan þeir voru báðir að reyna að koma sér áfram í leiklistinni.

Chris O’Dowd safnar umbúðum utan af súkkulaðistykkjum og á víst rúmlega þúsund slík í safni sínu.