Leikstjóri Fast & Furious tekur við Bourne

Eftir að hafa endurlífgað Fast & Furious-seríuna og breytt henni í eina þá tekjuhæstu hjá kvikmyndaverinu Universal, hefur leikstjórinn Justin Lin verið ráðinn í framhaldsmyndina The Bourne Legacy með Jeremy Renner í aðalhlutverki.

Film Title: The Bourne Legacy

Nýja myndin hefur ekki enn hlotið nafn. Reiknað er með að Renner snúi aftur í höfuðrullunni. Handritshöfundur verður Anthony Peckham sem skrifaði handritið að fyrri Sherlock Holmes-myndinni.

Miðasölutekjur af The Bourne Legacy námu rúmlega 275 milljónum dala úti um allan heim.

Lin hefur leikstýrt alls fjórum Fast & Furious-myndum.