Bílarnir brunuðu á toppinn

Ný kvikmynd brunaði á topp íslenska aðsóknarlistans nú um helgina, Cars 3, með Leiftur McQueen í broddi fylkingar. Myndirnar í öðru og þriðja sæti, Wonder Woman og Baywatch, standa í stað á milli vikna, en toppmynd síðustu viku, The Mummy, féll niður í fjórða sæti listans.

Ein ný mynd til viðbótar er á listanum, gamanmyndin Rought Night, sem fór beint í sjöunda sæti aðsóknarlistans.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: