Ofurstikla fyrir leikstjóraútgáfu Justice League

Glænýtt sýnishorn fyrir svonefndu Snyder-útgáfu ofurhetjumyndarinnar Justice League hefur verið afhjúpað, DC-aðdáendum til mikillar ánægju. Leikstjórinn Zack Snyder frumsýndi þessa súperstiklu á hátíðinni DC Fandome sem hefur farið fram á netinu á dögunum.

Sýnishornið gefur mátulega mikinn forsmekk af útkomunni og fær stórsmellurinn Hallelujah í flutningi Leonards Cohen að njóta sín til fulls, en aðdáendur Snyders muna líklegast eftir notkun hans í Watchmen frá 2009.

Þessi epíska, fjögurra (+) klukkutíma útgáfa af stórmyndinni mun formlega líta dagsins ljós á næsta ári. Það er streymisveitan HBO Max sem sýnir myndina og fjármagnar það sem eftir er af eftirvinnslunni. Snyder-klippið verður gefið út í fjórum hlutum/þáttum.

Í nýjum búningi – bókstaflega

Justice League var gefin út um vetur 2017 en frá upphafi útgáfuársins var orðið ljóst að ekki væri allt með felldu með þessa þriðju DC stórmynd frá Zack Snyder, eða réttara sagt að framleiðslan væri hreint í heljarinnar rugli.

Á meðan á klippiferli á Justice League stóð varð leikstjórinn að stíga frá verkefninu, en um það leiti skall harmleikur á þegar dóttir hans svipti sig lífi. Segja sumar heimildir að kvikmyndaverið Warner Bros. hafi einfaldlega rekið Snyder á meðan á sorgarferlinu stóð og hafi komið bein tilskipun framleiðenda að Justice League þyrfti að vera léttari, meira í líkingu við Marvel-myndirnar og alls ekki lengri en 120 mínútur.

Þá var Joss Whedon (Buffy, Avengers, Avengers: Age of Ultron) ráðinn til að eiga við handritið, leikstýra auka- og endurtökum (þá með skeggjuðum Cavill) og hafa yfirsýn yfir lokasamsetningu. Útkoman er sú sem áhorfendur sáu og þekkja í dag, en strax í kjölfar frumsýningarinnar fóru margir að krefjast þess að Warner Bros. gæfi út upprunalegu útgáfuna af myndinni. Eftir vaxandi baráttu myllumerkisins #ReleasetheSnyderCut, varð upprunalega sýn Snyders loksins nær því að verða að veruleika.

Svonefnda „Snyder-klippið“ er allt öðruvísi í tóni, umfangi og sögu. Á meðal þráða sem klipptir voru úr heildarverkinu voru ítarlegri baksögur Cyborg (Ray Fisher), The Flash (Ezra Miller) og fleiri Íslandsvina. Jafnframt voru þekktu DC persónurnar Green Lantern, Martian Manhunter og Darkseid fjarlægðar úr sögunni. Willem Dafoe, Jesse Eisenberg og fleiri aukaleikarar lentu einnig á klippigólfinu og samdi Junkie XL tónlistina í upprunalegu útgáfunni, áður en Danny Elfman tók síðar við. Auk þess er Superman ekki aðeins lukkulega laus við gúmmívarirnar heldur í svörtum búningi ofan á það.