Er siðlaust að mæla með Kevin Spacey myndum?

Getum við nokkurn tímann horft sömu augum á American Beauty og Seven?

Í Poppkúltúr vikunnar eru dregnar upp nokkrar spurningar í garð umdeildra (og jafnvel dæmdra) leikara, leikstjóra og annarra þekktra úr skemmtanaiðnaðinum. Bandaríski leikarinn Kevin Spacey er þó sérstaklega settur undir smásjá þáttastjórnenda.

Er það til dæmis almennt litið hornauga í samfélaginu að mæla með frammistöðu eða kvikmynd með Spacey?

Hvað með aðra góðkunningja, eins og til dæmis Roman Polanski eða Woody Allen? Hvenær og hvar er ásættanlegt að draga línu á milli listafólks og vafasams einkalífs þess?

Eigum kannski við von á annarri jólakveðju í ár frá Frank Underwood?

Hlaðvarpið má finna hér að neðan: