Drengirnir í hlaðvarpinu Atli & Elías uppgötva tæknina til að hringja í fólk í miðjum þætti og auðvitað nýta þeir nýfengna krafta sína hóflega og aðeins til góðs.
Þeir heyra í Einari Péturssyni á skrifstofunni sinni í Pegasus, hringja í móður annars þeirra uppi í sumarbústað og reyna að ná á Júlíus Kemp til að rukka skuld. Félagarnir vilja þó taka fram fram að umræddur reikningur hafi síðar verið greiddur.
Atli Óskar og Elías Helgi, leikarabræður með meiru, eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur.
Þeir lærðu kvikmyndagerð í Los Angeles í Bandaríkjunum en búa og starfa núna á Íslandi. Þáttur þeirra fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi.
Hægt er að hlusta á nýjasta þáttinn hér eða í gegnum Spotify að neðan: