Ásýnd Sambíóanna Kringlunni tekið stakkaskiptum

Sambíóin Kringlunni opnuðu loksins dyrnar upp á gátt fyrir helgi að loknum framkvæmdum sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Ráðist var í metnaðarfullar breytingar á aðkomu og veitingasölu bíósins og einnig voru nýir litir teknir inn. Óhætt er að segja að ásýnd bíósins hafi tekið stakkaskiptum og er nú öll hin glæsilegasta, eins og fram kemur í fréttatilkynningu bíósins.

Paolo Gianfrancesco hannaði endurbæturnar.

Góður andi og stemning

Paolo Gianfrancesco hjá THG Arkitektum sá um að hanna endurbæturnar á húsnæðinu þar sem upplifun og þarfir bíógesta voru höfð að leiðarljósi en á sama tíma var passað upp á að viðhalda þeim góða anda og stemningu sem ætíð er að finna í Sambíóunum Kringlunni, eins og segir í tilkynningunni.

Lengri opnunartími

Opnunartími Sambíóanna Kringlunni verður lengri en víða annars staðar en sýningar munu hefjast fyrr á daginn og um helgar verður boðið upp á morgunbíó sem vonandi kemur fjölskyldufólki og öðrum morgunhönum sérlega vel.

Um helgina var Avatar: The Way of Water eftir James Cameron, framhald af Avatar frá 2009, tekjuhæstu kvikmyndar allra tíma, frumsýnd í bíóinu og var hún m.a. sýnd samfleytt í heilan sólarhring.

Glænýr lúxussalur

Stærsta og metnaðarfyllsta breytingin á bíóinu er án nokkurs vafa glænýr og glæsilegur Lúxussalur sem mun bjóða upp á það allra besta sem völ er á þegar kemur að hljóð- og myndgæðum. Salurinn kemur til með að rúma 70 manns. Sætin verða fyrsta flokks með öllum þeim þægindum sem hægt er að hugsa sér og einnig mun salurinn luma á nýjung hér á landi þegar kemur að bíóupplifun en fremst í salnum verða legusæti þar sem virkilega er hægt að láta fara vel um sig líkt og í sófanum heima. Aftast í salnum verður svo að finna sérstök parasæti eða „private panel“ þar sem pör geta legið þétt saman og notið sýningarinnar.

Í fréttatilkynningunni segir að lúxussalurinn sé ekki alveg tilbúinn en framkvæmdirnar eru á lokametrunum og verður salurinn vígður með pompi og prakt í janúar.

Whitney Houston um jólin

Auk Avatar verða myndir eins og I Wanna Dance With Somebody sem fjallar um ævi og störf stórsöngkonunnar Whitney Houston, sýnd og einnig teiknimyndin um Stígvélaða köttinn; Puss in Boots: The Last Dance.

Stórmyndir í janúar

Strax í janúar á nýju ári eru nokkrar stórmyndir væntanlegar en það eru Babylon með Brad Pitt og Margot Robbie í aðalhlutverkum og tvær íslenskar myndir Napóleonsskjölin og Villibráð. Ekki má gleyma Metropolitan óperunni sem snýr aftur í Sambíóin Kringluna eftir hart nærri tveggja ára hlé.

„Það má því með sanni segja að það sé nóg um að vera í Sambíóunum Kringlunni og við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin aftur,“ segir að lokum í tilkynningunni.

Sjáðu fleiri myndir hér að neðan: