Svartbjörn á kókaíni

Hugmyndin að myndinni Cocaine Bear, sem kemur í bíó í dag, er sótt í raunverulega atburði sem áttu sér stað árið 1985 þegar svartbjörn komst í kókaín sem var varpað út úr flugvél eiturlyfjasmyglara og át stóran strigapoka fullan af eiturlyfinu og dó.

Bjössi gerir sig líklegan til að éta kókaínið.

Pokanum hafði verið kastað út úr vélinni vegna þess að hún var of þung. Flugmaðurinn var Andrew C. Thornton II, fyrrverandi eiturlyfjalögga og dæmdur eiturlyfjasmyglari. Thornton stökk síðan út úr vélinni en fallhlífin hans opnaðist ekki og beið hann bana.

Björninn, sem var um 80 kíló, fannst þremur mánuðum síðar og hjá honum 40 opin plasthylki með kókaíni. Björninn var uppstoppaður og er til sýnis í Kentucky for Kentucky Fun Mall í Lexington í Kentuckyríki.

240 kg. að þyngd

Björninn í þessari mynd er hins vegar 240 kíló að þyngd og í stað þess að geispa golunni við kókaínátið tryllist hann og verður morðóður.

Safnast þá saman furðulegur hópur sem samanstendur af lögreglumönnum, glæpamönnum, ferðamönnum og táningum og stefnir inn í skóg í Georgíuríki á höttunum eftir birninum morðóða.

Dökk kómedía

Kómedían er nokkuð dökk, en þó hæfilega villt, og eltingaleikurinn við uppkókaða skepnuna er bæði spennandi og spaugilegur og greinilegt að svartbjörninn vill ólmur meira blóð og meira kók.

Þetta er síðasta myndin sem Ray Liotta lék í, en hann lést óvænt 26. maí í fyrra.

Aðalhlutverk: Ray Liotta, Margot Martindale, Keri Russel, Alden Ehrenreich, Matthew Rhys og Kristofer Hivju

Handrit: Jimmy Warden

Leikstjórn: Elizabeth Banks