Kvikmyndir.is býður á Beau is Afraid

Vilt þú koma á sérstaka (lokaða) boðssýningu á BEAU IS AFRAID?

Nýjasta meinta martraðarfóðrið frá hinum margumtalaða Ari Aster, leikstjóra og handritshöfund Hereditary og Midsommar, nú með sína klikkuðustu, umdeildustu, undarlegustu og metnaðarfyllstu kvikmynd til þessa, hinum þriggja tíma langa og vægast sagt einkennilega dramagrínhryllingi frá A24.

Já, þetta er Beau is Afraid – og hún er þegar farin að skipta gagnrýnendum og áhorfendum í sterkar sem ólíkar fylkingar.

Joaquin Phoen­ix fer með aðal­hlut­verkið sem Beau, hann miss­ir annað for­eldrið og á leið til að hitta hitt for­eldrið þegar hann lendir í hindr­un­um sem aðeins Aster get­ur lík­lega látið sig dreyma um. Að öðru leyti hef­ur söguþræðinum verið haldið leyndu, en Nath­an Lane og Patti LuPo­ne leika einnig lykilhlutverk, með Armen Nahapetian í aukahlutverki sem Beau á tán­ings­aldri.

Á fimmtudaginn 20. apríl verður haldin lokuð boðssýning þar sem ræman súra verður sýnd í AXL Laugarásbíós kl. 20:00. 

Ef þig langar að eiga séns á boðsmiðum – fyrir þig og annan gest – er hægt að taka þátt í getraun okkar á Facebook-síðu vefsins.


AÐRAR UPPLÝSINGAR:

Aldurstakmark: 16 ára
Lengd: 179 mín
Verður hlé? .
Texti? .
Allra? Neibb.

Fylgist einnig með:

https://twitter.com/TommiValgeirs
https://www.facebook.com/groups/1409405829381184

https://www.facebook.com/TommiValgeirs

Sjáumst vonandi í salnum.