Super Mario bræður langvinsælastir

Enn eru Super Mario bræður í teiknimyndinni The Super Mario Bros. Movie langvinsælastir í bíó á Íslandi en rúmlega sjö þúsund manns komu á myndina um síðustu helgi. Það eru um sex þúsund fleiri en komu á myndina í öðru sæti, Dungeons and Dragons: Honor among Thieves.

Í þriðja sæti höfum við svo nýja mynd, teiknimyndina Demon Slayer: To the Swordsmith Village.

Í fjórða sæti og í því tuttugusta eru einnig nýjar myndir, vampíru- og blóðsúthellingarveislan Renfield annars vegar og svo Girl Picture í Bíó paradís hinsvegar.

Sjáðu íslenska bíóaðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: