Ekkert fararsnið á Super Mario bræðrum

Það er ekkert fararsnið á Super Mario bræðrum á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans en þar hafa þeir nú dvalið í þrjár vikur samfleytt. Hrollvekjan Evil Dead Rise, ný á lista, gerði þó atlögu að teiknimyndinni en hafði ekki erindi sem erfiði. Tekjur hryllingsmyndarinnar voru tæpar fjórar milljónir króna en Super Mario bræður voru með tæpar sex milljónir í tekjur.

Í þriðja sæti er svo ævintýrafólkið í Dungeons & Dragons Honor Amoung Thieves.

Magnús og Beau

Hinar tvær myndirnar, Magnús hinn magnaði og Beau is Afraid lentu í fimmta og níunda sæti listans.

Boy from Heaven í 19. sæti er einnig ný á lista.

Sjáðu íslenska bíóaðsóknarlistann í heild sinni hér fyrir neðan: