Kevin Spacey sem David Gale

Óskarsdrengurinn og laumuhomminn Kevin Spacey ( American Beauty ) var að landa aðalhlutverkinu í kvikmyndinni The Life Of David Gale undir leikstjórn Alan Parker ( Angela’s Ashes ). Er hún byggð á sönnum atburðum og fjallar um samnefndan David Gale sem var dæmdur til dauða fyrir alls kyns óskunda. Var George Clooney ( The Perfect Storm ) fyrst ráðinn en hætti eftir listrænan ágreining. Nicholas Cage ( Con Air ) mun einnig fara með hlutverk í myndinni og er Universal kvikmyndaverið sem framleiðir myndina í samningaviðræðum við Nicole Kidman ( Moulin Rouge ) um að leika aðalkvenhlutverkið á móti Spacey.