Nýtt í bíó – Alpha

Stórmyndin Alpha með Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í stóru hlutverki, verður frumsýnd þann 29. ágúst nk., að því er fram kemur í tilkynningu frá Senu. Kvikmyndin verður sýnd í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri.

Myndin gerist fyrir 20 þúsund árum, einhvers staðar á meginlandi Evrópu, og segir frá ungum dreng, Keda, sem í miðri veiðiferð með föður sínum (Jóhannes Haukur) verður viðskila við hann og aðra veiðifélaga þeirra. Keda neyðist því til að sjá um sig sjálfur í fyrsta sinn á ævinni og finna leiðina heim áður en veturinn skellur á.

Nokkrum dögum eftir viðskilnaðinn gengur Keda fram á særðan úlf sem undir venjulegum kringumstæðum væri einn af hans verstu óvinum en getur nú litla sem enga björg sér veitt. Keda ákveður að taka úlfinn með sér í hellinn sem hann hefur fundið og gerir í framhaldinu sitt besta til að bæði fæða hann og hjúkra honum.

Smám saman fer úlfurinn að treysta bjargvætti sínum betur og betur uns á milli þeirra myndast traust vinátta. Hún á í raun eftir að breyta mannkyninu til allrar framtíðar því þetta er í fyrsta sinn sem maður og úlfur mynda á milli sín slíka vináttu, en úlfar eru eins og flestir vita forfeður allra hunda og hundakynja á jörðinni.

Áhugaverðir punktar til gamans: 

-Alpha er fimmta myndin sem Albert Hughes leikstýrir en sú fyrsta sem hann leikstýrir einn síns liðs því hinum fjórum leikstýrði hann ásamt bróður sínum Allen. Þær eru Menace II Society, Dead Presidents, From Hell og The Book of Eli – og eru þá ótaldar heimildar- og stuttmyndir sem bræðurnir hafa einnig sent frá sér í gegnum árin.

-Samkvæmt upplýsingum á Imdb.com var myndin að mestu tekin upp í Bresku Kólumbíu og Albertaríki Kanada en hluti af landslagsmyndum sem notaðar eru sem baksvið eru frá Íslandi. Við reyndum að sjá eitthvað af þeim upptökum í stiklunum en komum ekki auga á neitt sem fullyrða má að sé frá Íslandi og því kemur það í hlut væntanlegra áhorfenda að finna þessar baksviðsmyndir!

Sjáðu stiklu og plakat hér fyrir neðan: