Það er komin ný kvikmynd á topp íslenska bíóaðsóknarlistans og hún er ekki af verri endanum. Ofur/andhetjumyndin Thunderbolts* þaut efst á listann og ruddi Minecraft niður í annað sætið en Minecraft hefur notið gríðarlega vinsælda síðustu vikur.

Í þriðja sæti listans er svo Sinners, sem var í öðru sæti í síðustu viku.
Nýja myndin Sneaks, um strigaskó í stórborg, skundaði beint í sjöunda sæti aðsóknarlistans.
Sjáðu íslenska topplistann hér fyrir neðan í heild sinni:

