Rokkað í Afghanistan – Fyrsta stikla úr Rock the Kasbah

Bill Murray fer til Afghanistan í fyrstu stiklu úr nýjustu mynd Barry Levinson, Rock the Kasbah, sem frumsýnd verður 23. október nk.

murray

Handrit myndarinnar skrifaði Mitch Glaser, en í myndinni leikur Murray Richi Lanz, umboðsmann rokkhljómsveita, sem fer með eina skjólstæðinginn sem hann á eftir ( sem Zooey Deschanel leikur ) í tónleikaferð til Afghanistan.

Þegar Zooey stingur Murray af í Kabul og stelur peningunum hans og vegabréfi, þá neyðist hann til að reyna að fóta sig á ókunnum slóðum þar til hann hittir unga stúlku með flotta rödd.

Aðrir leikarar eru ekki af verri endanum; Kate Hudson, Danny McBride, Scott Caan og Bruce Willis eru þar á meðal.

Kíktu á stikluna hér fyrir neðan: