Sigurvegarar í Bullet to the Head leiknum

Jæja, þá er Bullet to the Head leiknum okkar lokið.
Það tóku 27  manns þátt og við þökkum ykkur öllum kærlega fyrir þátttökuna.

Í leiknum þá dugði fyrir þátttakendur að nefna þrjár ástæður fyrir því að þeir elskuðu Sylvester Stallone, aðalleikara Bullet to the Head, sem leikara.

Sigurvegararnir eru þessir:

Ásgeir Tranberg
Anna Alexandra Haraldsdóttir
Sigurður Atli
Þengill Þór Vilhljálmsson
Þorsteinn Rúnar Stefánsson

Til hamingju með miðana!

Siguvegararnir mega senda heimilisfang sitt annað hvort til okkar á kvikmyndir.is í Facebook pósti, eða í tölvupósti á kvikmyndir@kvikmyndir.is. Við setjum svo miðana í póst strax eftir helgi, 2 miðar á mann, en þetta eru miðar sem gilda á myndina á meðan hún er í sýningu.

Nokkrar góðar ástæður frá þátttakendum í leiknum, fyrir því að elska Stallone sem leikara:

„Leikurinn hans er fremur eftirminnilegur og einkennilegur útaf lömun hans í andliti.“

„Harðasti gæji sem hefur komið fram á breiðtjaldinu 2 fær mann til að að vilja lyfta þungum hlutum og hlaupa uppá fjöll og öskra Drago hann er 3 fluggáfaður.“

„Hann hefur skapað margar eftirminnilegustu persónur kvikmyndasögunnar“

„Hann er i betra formi en ég en er samt 60+“

„Hann getur varla talað en hann er krafthnausaður“

„Hann er með tattoo, lék rocky og er á sterum“

„Þarf bara eina ástæðu: “ I AM THE LAW““