Ben Affleck sló heldur betur í gegn sem hasarhetja þegar The Accountant var frumsýnd fyrir tæpum áratug. Áhorfendur tóku myndinni opnum örmum og velgengni hennar skapaði eftirvæntingu eftir framhaldi, sem loks varð að veruleika.
Frábær kemistría milli Affleck og Bernthal
The Accountant 2, sem leikstýrt er af Gavin O’Connor, þeim sama og leikstýrði fyrstu myndinni, er bandarísk hasarspennumynd sem hefur nú þegar gengið vel í kvikmyndahúsum. Myndin hefur hlotið jákvæðar umsagnir frá gagnrýnendum og það sem einkennir hana hvað mest er frábær kemistría milli aðalleikaranna Ben Affleck og Jon Bernthal.
Þegar The Accountant kom út árið 2016 fékk myndin einungis 53% á Tomatometer hjá Rotten Tomatoes og taldist því „rotin“, þrátt fyrir að áhorfendaskorið hafi verið 77%. Ein ástæða þess að framhaldið lét svona lengi á sér standa gæti verið sú að þótt áhorfendur hafi haft gaman af The Accountant, voru gagnrýnendur síður hrifnir.
The Accountant 2 hefur hins vegar þegar náð að bæta sig verulega í augum gagnrýnenda. Framhaldið stendur í 77% á Tomatometer, sem nægir til að hljóta heiðursmerkið „Certified Fresh“, og áhorfendaskorið stendur í glæsilegum 93%.
Accountant 2 nærri tvöfalt dýrari
The Accountant (2016) lauk sýningartímabili sínu með yfir 150 milljón dollara heildartekjur á heimsvísu, gegn áætluðum framleiðslukostnaði upp á um 45 milljónir dollara. Framhaldið, The Accountant 2, var nærri tvöfalt dýrari og kostaði um 80 milljónir dollara í framleiðslu. Því þarf framhaldið að standa sig enn betur sölulega séð til að skila svipuðum hagnaði.
Heimildir: https://www.cinemablend.com/movies/the-accountant-2-blowing-ben-affleck-original-movie-out-water-rotten-tomatoes
https://collider.com/the-accountant-2-a-minus-cinemascore-rotten-tomatoes-audience-score/
Þegar fyrrum yfirmaður Marybeth Medina er drepinn af óþekktum leigumorðingjum neyðist hún til að leita hjálpar hjá Christian Wolff. Með hjálp bróður síns, hins stórhættulega Brax, hefst hinn bráðsnjalli Wolff handa við að leysa málið og notar til þess vafasamar aðferðir ...