The Lord of the Matrix: Þegar þrennt umdeilt er

Tvær trílógíur. Tveir gerólíkir heimar. Gerólík áhrif á poppkúltúrinn í kringum gerð kvikmyndanna sem eiga sér ófáa aðdáendur víða um heiminn. Sumir eru Gandalf-megin í lífinu, aðrir hallast nær Neo.

En mætti færa rök fyrir að Hringadróttins- og Fylkissaga eldist vel? Í hvaða pattstöðu er hin komandi fjórða Matrix kvikmynd stödd? Af hverju er The Fellowship of the Ring talin vera besta myndin í þeim þríleik? Hví er Matrix þríleikurinn svona hataður? Þótti einhverjum Red Planet vera góð hugmynd??

Mál þessi ásamt prófíl Peters Jackson, Keanu Reeves og lýðheilsu Vals Kilmer eru á dagskrá í sérinnslagi Poppkúltúrs þessa vikuna. Að þessu sinni fær Tómas Valgeirsson til sín Sindra Grétarsson kvikmyndagerðarmann í menningarlegt bíótal þar sem slegið er á gamla strengi og nostalgíuboxin opnuð. Þó er líka tilefni til að maukstúdera hvort og hvar saumarnir sjást á tveimur stærstu stórmyndarisum kvikmyndasögunnar, þá í flokki þeirra sem ruddu veginn og brutu blað í brellum á hvíta tjaldinu upp úr aldamótum.

Þá er ekki eftir neinu að bíða en að bjóða fram gyllta hringinn og rauðu pilluna og kanna hvort eitthvað mynstur tengir hvort tveggja.

Þáttinn má nálgast gegnum Spotify hlekk hér að neðan, en sarpur Poppkúltúrs er að finna hér í heild sinni.