Trölli stal toppsætinu

The Grinsh, eða Trölli sem stal Jólunum eins og persónan og sagan heitir á íslensku, heillaði íslenska bíógesti svo um munaði nú um helgina og stal toppsætinu af hljómsveitinni Queen í Bohemian Rhapsody, sem fór niður í annað sæti íslenska bíóaðsóknarlistans.

Myndin sem var í öðru sæti í síðustu viku, A Star is Born, fór niður í þriðja sæti listans.

Tvær nýjar myndir til viðbótar við Trölla eru á listanum að þessu sinni. Í fjórða sæti er uppvakninga-nasistatryllirinn Overlord, og í 7. sætinu er nýja Girl in the Spider´s Web myndin.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan. Smelltu á töfluna til að skoða hana stærri: