Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

The Wolverine 2013

Justwatch

Frumsýnd: 24. júlí 2013

126 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 71% Critics
The Movies database einkunn 61
/100

Myndin er byggð á vinsælum teiknimyndasögum og fjallar um Wolverine, sem er einn þekktasti meðlimur hinna svokölluðu X-Men, og ævintýri hans í Japan. Þar þarf hann að takast á við erkióvin sinn og berjast upp á líf og dauða, í bardaga sem mun breyta honum til frambúðar. Líkamleg og tilfinningaleg mörk Wolverine eru þanin til hins ítrasta, og hann þarf... Lesa meira

Myndin er byggð á vinsælum teiknimyndasögum og fjallar um Wolverine, sem er einn þekktasti meðlimur hinna svokölluðu X-Men, og ævintýri hans í Japan. Þar þarf hann að takast á við erkióvin sinn og berjast upp á líf og dauða, í bardaga sem mun breyta honum til frambúðar. Líkamleg og tilfinningaleg mörk Wolverine eru þanin til hins ítrasta, og hann þarf að takast á við stórhættulegt samúræjastál, auk þess að eiga í innri baráttu sem snýr að hans eigin ódauðleika. Þetta verður til þess að hann vex og styrkist og verður sterkari en nokkru sinni fyrr. Ásóttur af eigin fortíð, þjakaður af sársauka og söknuði vegna þeirra sem hann hefur misst, hefur Logan verið í felum frá umheiminum í eitt ár. En hann er ekki gleymdur. Wolverine er ekki bara óviðjafnanlegur bardagamaður heldur læknar líkami hans sig sjálfur af öllum sárum á örskotshraða. Þessi eiginleiki Wolverines gerir hann ekki bara ósigrandi heldur líka ódauðlegan. Í eitt ár hefur Wolverine látið lítið fyrir sér fara í afskekktu fjallaþorpi og óskar þess eins að fá að vera í friði. Þær óskir verða hins vegar að engu þegar japönsk stúlka sem hefur lengi leitað hans fær hann til að koma með sér til Japans að hitta yfirmann sinn, en sá á Logan lífið að launa og ætlar að gera honum afar sérstakt, en um leið banvænt tilboð. The Wolverine gerist eftir atburðina í X-Men: The Last Stand, en í þeirri mynd dó Jean Gray eða Phoenix eins og hún nefnist líka. Hún kemur samt við sögu í draumum Logans í þessari mynd.... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Tengdar fréttir

29.10.2022

Þéttasti Bíóbær til þessa - Egg, Bros, Krókódíll, hjón og börn

Í nýjasta þætti kvikmyndaþáttarins Bíóbæjar, sem frumsýndur er alla miðvikudaga á Hringbraut, og er nú eins og aðstandendur lýsa honum sjálfir "sá þéttasti til þessa", er rætt um nýju finnsku hryllingsmyndin...

21.10.2022

Syngjandi krókódíll sem elskar bað og kavíar

Fjölskyldumyndin Kalli káti krókódíll , sem kemur í bíó í dag, er byggð á metsölu-barnabókaflokki eftir Bernard Waber. Á frummálinu heitir Kalli Lyle og myndin er tónlistargamanleikur sem færir krókódílinn indæla...

19.10.2022

Kalli er kátari en hinir - Fimm aðrar krókódílamyndir

Kalli káti krókódíll kemur í bíó á föstudaginn. Af því tilefni datt okkur í hug að setja saman stuttan lista af krókódílamyndum, þó ekki séu þær allar jafn fjölskylduvænar og Kalli káti krókódíll og krók...

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn