Í gær upplýsti leikstjórinn James Mangond um nafn næstu Wolverine myndar, þeirrar þriðju í röðinni. Titillinn er einfaldlega Logan, en það er vísan í nafn hins stökkbreytta Wolverine, sem heitir fullu nafni James Howlett, alltaf kallaður Logan. Það er Hugh Jackman sem fer með hlutverk Wolverine.
Jafnframt upplýsti Mangold að í myndinni væri Wolverine búinn að eldast, heilsu hans hefði hrakað, hann lifði við stöðuga verki, og hann glímdi við drykkjuvandamál.
3-3-17 pic.twitter.com/43M6utakTQ
— Mangold (@mang0ld) October 5, 2016
Mangold birt af þessu tilefni bæði nýtt plakat og eina handritssíðu. Á plakatinu er hendi Wolverine með klærnar úti og svo heldur barnshönd í hendi hans. Mögulega er það stúlka sem er klónuð dóttir Wolverine, X-23, að því er Joblo vefurinn leiðir líkum að.
Á handritssíðunni lítur út fyrir að von sé á harðsoðnu efni: „Í þessari mynd mun fólk verða meitt eða drepið þegar hlutir falla á það. Það mun meiða sig jafn mikið og deyja jafn mikið eins og þegar eitthvað stórt dettur á það, eins og bíll. Ef einhver í sögunni dettur ofan af þaki eða út um glugga, þá munu þeir deyja.“
Logan kemur í bíó hér á Íslandi og í Bandaríkjunum 3. Mars 2017.
Sjáðu plakatið hér fyrir neðan: