Stuttmyndadagar 2008 á fimmtudaginn

Glöggir lesendur hafa tekið eftir merkingunni Stuttmyndadagar 2008 undir „Á döfinni“ hér hægra megin á síðunni. Við ætlum rétt að vona fyrir ykkar hönd að þið séuð búin að skila inn mynd!

Stuttmyndadagar 2008 verða haldnir í Kringlubíói fimmtudaginn 29. maí.
Veitt
verða verðlaun fyrir bestu stuttmyndina að verðmæti 100.000 kr, 75.000
fyrir annað sætið og 50.000 fyrir þriðja sætið.  Vinningsmyndin verður
þar að auki kynnt á Short Film Corner á kvikmyndahátíðinni í Cannes og höfundi myndarinnar boðið á hátíðina. Áhorfendaverðlaun verða í boði Vífilfells og Sambíóanna.

Skilafresti lauk 1. maí en
hægt var að skila myndum til Kvikmyndafélags Íslands í Bankastræti 11 en
einnig var hægt að skila myndum inn rafrænt á vefsíðunni
stuttmyndadagar.is

Öllum var heimilt að senda inn myndir en hámarkslengd mynda er 15 mínútur.  Nánari upplýsingar um reglur hátíðarinnar er að finna á heimasíðunni.

Stuttmyndadagar
hafa verið haldnir í Reykjavík frá árinu 1992 og eru  Reykjavíkurborg,
Kvikmyndamiðstöðin, Vífilfell, Menntamálaráðuneytið og Sjónvarpið
helstu bakhjarlar hátíðarinnar.

Allar nánari upplýsingar fást á stuttmyndadagar.is