Á mándaginn 21. júlí verður kvikmyndir.is með forsýningu á stærstu mynd sumarsins, The Dark Knight. Sýningin verður kl. 22:20.
Á undan sýningu verður boðið upp á ýmsan Batman-varning og heppnir gestir sem að mæta í búningum, svosem bolum eða öðru slíku, fá extra flottan bónus vinning.
Þessi sýning verður á sama tíma og Nexus forsýningin, nema við erum að gefa miða á okkar og er spurningin hvort þú verðir sá heppni til að hreppa tvo frímiða á sýninguna og eiga jafnvel séns á því að koma heim eftirá með fullar hendur af skemmtilegu dóti.
Þetta verður þannig að við munum gefa út ákveðin fjölda af miðum í þremur lotum. Hver getraun endist í cirka 24 tíma. Ein er búin, sú næsta er í dag, svo sú seinasta á sunnudeginum.
Hver lota samanstendur af þremur spurningum sem verða erfiðari með hverri lotu.
Hefst nú önnur lotan. Hún rennur út um hádegið á morgun (19. júlí) en er þó stutt í þá næstu eftir það.
Spurningarnar eru eftirfarandi:
1. Hvað hafa margir menn leikið Batman í bíómyndum? (ath. sá allra elsti er tekinn með)
2. Hver lék Two-Face í Batman Forever, árið 1995?
3. Maggie Gyllenhaal leikur persónuna Rachel Dawes í The Dark Knight. Hver lék hana í fyrri myndinni?
Svör sendast á tommi@kvikmyndir.is.
Viðkomandi þarf að gefa upp nafn og kennitölu.
Ég mun hafa beint samband við vinningshafana í fyrramálið en hvet þá sem ekki ná miða til að fylgjast með áfram.
Gangi ykkur vel!

