Myndin What To Expect When You Are Expecting, sem fjallar um fimm pör, og hvernig líf þeirra fer allt á hvolf þegar von er á barni inn á heimilið, náði langbesta árangri á DVD í vikunni, en myndin er aðra vikuna á röð á toppi DVD vinsældarlistans á Íslandi.
Aftur í öðru sæti er vísindatryllirinn Prometheus eftir Ridley Scott, sem tekin var að hluta á Íslandi. Þriðja sætið vermir svo hin rómantíska gamanmynd The Five Year Engagement Plan og Jason Statham er harður í fjórða sætinu í Safe, og fer niður um eitt frá því í síðustu viku.
Bruce Willis Spennumyndin Cold Light of Day er síðan í fimmta sætinu.
Hér geturðu skoðað hvað er væntanlegt á DVD og hvaða myndir eru nýkomnar ofl.
Einnig eru væntanlegar myndir hér í Myndir mánaðarins.
Hér að neðan er listinn í heild sinn: