Náðu í appið
The Look of Silence

The Look of Silence (2014)

1 klst 43 mín2014

Augnaráð Þagnarinnar er framhald einnar mögnuðustu heimildarmyndar 21.

Rotten Tomatoes96%
Metacritic92
Deila:
The Look of Silence - Stikla

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Augnaráð Þagnarinnar er framhald einnar mögnuðustu heimildarmyndar 21. aldarinnar, Athöfnin að Aflífa (e. The Act of Killing). Í fyrri myndinni beindi leikstjórinn Joshua Oppenheimer sjónum sínum að málaliðum sem lýsa því í smáatriðum hvernig þeir murkuðu lífið úr fjölda fólks á sjöunda áratugnum í skiplagðri útrýmingu indónesískra stjórnvalda á meintum kommúnistum. Í þessari mynd eru fórnarlömb morðanna í forgrunni. Aðalpersóna myndarinnar er sjóntækjafræðingurinn Adi sem ákveður að gera upp fortíðina við málaliðana sem myrtu bróður hans í hreinsununum. Adi ferðast til nærliggjandi þorpa þar sem morðingjarnir lifa í vellystingum og framkvæmir á þeim sjónpróf sem umbreytast í nokkurs konar yfirheyrslur um upplifun þeirra af vargöldinni. Vitnisburðir ódæðismannanna eru á tíðum vægast sagt andstyggilegir.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Joshua Oppenheimer
Joshua OppenheimerLeikstjórif. -0001

Framleiðendur

Making MoviesFI
Final Cut for RealDK
Piraya FilmNO
Spring FilmsGB
Anonymous
Britdoc FoundationGB