The Passion of Darkly Noon
1995
Fannst ekki á veitum á Íslandi
When your deepest desire becomes your worst nightmare...
100 MÍNEnska
44% Critics Eftir að strangtrúaðir foreldrar hans deyja, er Darkly einn og yfirgefinn og týnist í skóginum. Vörubílstjóri að nafni Jude, bjargar manninum sem er orðinn uppgefinn, og hefur aðeins Biblíuna til huggunar og stuðnings. Bílstjórinn fer með Darkly heim til Callie og Clay, tveggja elskenda sem búa í skóginum. Á meðan Clay er í burtu, þá hjúkrar hin fagra Callie... Lesa meira
Eftir að strangtrúaðir foreldrar hans deyja, er Darkly einn og yfirgefinn og týnist í skóginum. Vörubílstjóri að nafni Jude, bjargar manninum sem er orðinn uppgefinn, og hefur aðeins Biblíuna til huggunar og stuðnings. Bílstjórinn fer með Darkly heim til Callie og Clay, tveggja elskenda sem búa í skóginum. Á meðan Clay er í burtu, þá hjúkrar hin fagra Callie Darkly þar til að hann nær heilsu, og hann fær þráhyggju gagnvart henni, sem í algjörri andstöðu við allt sem honum hafði verið kennt í æsku - kynferðislega þráhyggju, og fyrir það refsar hann sjálfum sér með húðstrýkingu. Þegar Clay snýr aftur heim og Darkly sér parið kyssast, þá er það of mikið fyrir hann. Hann hlustar á þau elskast á hverju kvöldi, og þráhyggja hans þróast yfir í geðveiki. Þegar Darkly hittir ekkjuna Roxy í skóginum, þá segir hún honum að Callie sé norn sem drap eiginmann hennar, og vilji tæla unga menn. Þegar Roxy fremur sjálfsmorð, þá vill hinn geðsjúki Darkly refsa syndurunum.... minna