Þessi mynd fjallar um stelpu sem heitir Didda.Hún dettur í lýsistunnu og fær svo góða sjón að hún getur séð í gegnum veggi! Kári, bróðir Diddu týnist og auðvitað bjargar Didda má...
Didda og dauði kötturinn (2003)
Didda er níu ára gömul stelpa sem býr í gamla bænum í Keflavík.
Öllum leyfðSöguþráður
Didda er níu ára gömul stelpa sem býr í gamla bænum í Keflavík. Hún er gleraugnaglámur og lestrarhestur og finnst fátt skemmtilegra en að sitja uppi í risi í húsinu sínu og lesa góða bók eða fylgjast með nágrönnum sínum og velta fyrir sér hvað þeir eru að sýsla. Einn daginn leiða njósnirnar hana fram af skúrþaki þannig að hún dettur ofan í lýsistunnu. Skömmu síðar áttar hún sig á því að hún þarf ekki lengur að nota gleraugun. Og að hún er jafnvel farin að sjá betur en allir aðrir, en sá hæfileiki kemur í góðar þarfir þegar Didda fer að eltast við glæpamenn sem hafa rænt hrekkjusvíninu bróður hennar og vini hans. Í söguna blandast afturgenginn köttur, ægifögur en undirförul sjoppukona, ruglaður rithöfundur, pabbi sem er lögga, mamma sem er blaðamaður og margir, margir fleiri.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir

Gagnrýni notenda (2)
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráDidda og dauði kötturinn er mjög góð saga og kemur mjög vel út á hvítatjaldinu. Myndin fjallar um Diddu sem dettur út í lýsistunnu og fær súpersjón. Þessa gáfu notar hún til að finn...










