Náðu í appið
Kvikmyndir um lífið í Gineu-Bissá

Kvikmyndir um lífið í Gineu-Bissá (2010)

1 klst 49 mín2010

Hér segir frá lífi fólksins í þorpinu Endena á eyjunni Canhabaque sem er ein af eyjum í Bijago eyjaklasanum skammt undan strönd Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku.

IMDb5.7
Deila:

Hvar má horfa

Streymi
Netflix
Leiga
Síminn

Söguþráður

Hér segir frá lífi fólksins í þorpinu Endena á eyjunni Canhabaque sem er ein af eyjum í Bijago eyjaklasanum skammt undan strönd Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku. Þar kveða siðir meðal annars á um að ungir menn verði að gangast undir vald öldunga þorpsins. Þetta felur í sér sérstaka vígsluathöfn og að henni lokinni segja þeir skilið við fjölskyldu sína. Í myndinni er einnig brugðið upp svipmynd af daglegu lífi fólks á eyjunni og baráttunni fyrir lífsviðurværi í þorpinu. Börn á Bijagos eyjunum Um er að ræða þrjár stuttar myndir um systurnar Juba og Bondia. Í fyrstu myndinni fylgjum við þeim þar sem þær sækja ferskt drykkjarvatn í lind sem sprettur fram í flæðarmálinu. Í annarri mynd veiða þær krabba á leirunum sem koma úr sjó á fjöru, en þar krafa þær smákrabba upp úr sandinum, en krabbarnir eru mikilvæg fæðubót fyrir fjölskylduna. Þá er stutt mynd um Jubu sem tekur sér sveðju í hönd og heldur út í skóg til að afla sér efnivið í nýtt strápils, en pilsið hnýtir hún úr berki greinanna sem hún heggur í skóginum. Í myndinni sjáum við hvernig pilsið verður til og hvernig hún að lokum fer í nýja pilsinu sínu og tekur þátt í hringdansi stúlknanna í þorpinu. Samtals báðar 67 mín. Dúi J. Landmark Landið sem gleymdist (42 mín) Þessi heimildamynd segir frá því þróunarstarfi sem UNICEF á Íslandi hefur unnið í Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku í samvinnu við íslensk fyrirtæki og almenning. Myndin segir frá daglegu lífi og aðstæðum barna í landinu, þeirri þörf sem er fyrir þróunaraðstoð og starfinu sem verið er að vinna til að gera líf íbúa þessa fátæka lands léttbærara. Myndin var tekin upp í Gíneu-Bissá á árinu 2005. Myndin sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Dúi J. Landmark
Dúi J. LandmarkLeikstjóri

Aðrar myndir

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!