Náðu í appið
Blitz

Blitz (2011)

"It´s Cop Killer versus Killer-Cop"

1 klst 37 mín2011

Blitz er gerð eftir samnefndri skáldsögu enska rithöfundarins Kens Bruen, en hann hefur notið mikillar hylli spennusöguaðdáenda á undanförnum árum og er Blitz fjórða myndin...

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Blitz er gerð eftir samnefndri skáldsögu enska rithöfundarins Kens Bruen, en hann hefur notið mikillar hylli spennusöguaðdáenda á undanförnum árum og er Blitz fjórða myndin sem er gerð eftir sögum hans. Blitz gerist í suðausturhluta Lundúna þar sem lögreglan er ýmsu vön. Enginn átti þó von á því að þeir þyrftu að glíma við algjörlega geggjaðan raðmorðingja sem kallar sig “Blitz” og myrðir eingöngu lögreglumenn. Blitz reynist afar kænn þrátt fyrir geðveikina og leikur sér að því hvað eftir annað að sleppa óséður frá morðvettvangi þótt allt tiltækt lögreglulið sé sent á eftir honum. Það líður þó ekki á löngu uns lögreglan fær vísbendingar um hver Blitz er í raun og veru og er þá hinum reynda rannsóknarlögreglumanni Tom Brant falið að góma hann, enda er Brant þekktur fyrir að ná árangri. Og eltingarleikurinn er hafinn ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Elliott Lester
Elliott LesterLeikstjóri

Aðrar myndir

Framleiðendur

Lipsync ProductionsGB
Kushner/Wyman ProductionsUS
Davis FilmsFR
LionsgateUS
Current EntertainmentUS