Náðu í appið
3 Idiots

3 Idiots (2009)

Three Idiots

"Don't be Stupid. Be an I.D.I.O.T."

2 klst 50 mín2009

Bollywood-stórmyndin 3 Idiots er gamanmynd sem segir frá Farhan Qureshi og Raju Rastogi, sem deila heimavistarherbergi í tækniskóla nokkrum með þriðja nemanum, Rancchoddas Shamaldas Chanchad,...

Rotten Tomatoes100%
Metacritic67
Deila:
3 Idiots - Stikla
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Bollywood-stórmyndin 3 Idiots er gamanmynd sem segir frá Farhan Qureshi og Raju Rastogi, sem deila heimavistarherbergi í tækniskóla nokkrum með þriðja nemanum, Rancchoddas Shamaldas Chanchad, sem ávallt er kallaður Rancho. Þeir félagar eru meira en lítið duglegir við að óhlýðnast ströngum reglum skólans og vekja þeir upp reiði skólastjórans hvað eftir annað, sem fær þó aldrei næga ástæðu til að reka þá. Hann reynir þó eins og hann getur að slíta tríóið, sem hann kallar „Hálfvitana þrjá“, í sundur á sama tíma og hann heldur mikið upp á annan nemanda, Chatur, sem hann reynir auk þess að beita í baráttu sinni við þá. Þegar Rancho verður ástfanginn af dóttur skólastjórans, læknanemanum Piu, tekur atburðarásin nýja stefnu, sem meðal annars veldur því að Raju slasast. Hversu lengi geta þeir haldið fíflaskapnum áfram áður en þeir neyðast til að þroskast? Vonandi sem lengst...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Rajkumar Hirani
Rajkumar HiraniLeikstjóri

Aðrar myndir

Abhijit Joshi
Abhijit JoshiHandritshöfundur

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Vidhu Vinod Chopra ProductionsIN
Vinod Chopra FilmsIN