Náðu í appið
Fun Size

Fun Size (2012)

"Let´s get this Search Party Started"

1 klst 26 mín2012

Áætlun vinkvennanna Wren og April um að skemmta sér ærlega á hrekkjavökunni fer heldur betur úrskeiðis þegar Wren neyðist til að passa Albert bróður sinn.

Rotten Tomatoes25%
Metacritic37
Deila:
Fun Size - Stikla
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Áætlun vinkvennanna Wren og April um að skemmta sér ærlega á hrekkjavökunni fer heldur betur úrskeiðis þegar Wren neyðist til að passa Albert bróður sinn. Hér er á ferðinni ærslafull gamanmynd sem höfðar fyrst og fremst til unglinga. Hrekkjavakan nálgast og Wren verður dálítið upp með sér þegar aðaltöffarinn í skólanum býður henni í samkvæmi heim til sín. Hún ákveður að fara ásamt bestu vinkonu sinni, April, en þegar stundin rennur upp fer allt í steik. Ástæðan er sú að móðir Wren er sjálf að fara í samkvæmi og ætlast til þess að Wren passi bróður sinn, Albert. Við þetta á Wren auðvitað erfitt með að sætta sig en fær engu tauti við móður sína komið sem segir bara bless og er farin í Britney Spears-búningnum sínum. En þetta er bara byrjunin á vandræðum Wren því um kvöldið týnir hún Albert í mannhafinu og kvöldið sem átti að verða svo skemmtilegt snýst upp í örvæntingarfulla leit að litla bróður ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Josh Schwartz
Josh SchwartzLeikstjóri

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Nickelodeon MoviesUS
Paramount PicturesUS
Anonymous ContentUS
Fake Empire ProductionsUS