Náðu í appið
Breakout

Breakout (2013)

"Barátta upp á líf og dauða"

1 klst 29 mín2013

Systkini í kajakferð verða vitni að morði í afskekktum skógi og verða um leið sjálf að bráð morðingjans sem ætlar sér ekki að skilja neinn eftir til frásagnar.

Deila:
Breakout - Stikla
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Systkini í kajakferð verða vitni að morði í afskekktum skógi og verða um leið sjálf að bráð morðingjans sem ætlar sér ekki að skilja neinn eftir til frásagnar. Systkinin Jenny og yngri bróðir hennar, Mickey, búa með móður sinni Mariu og stjúpföðurnum Andrew í Ontario í Kanada, en raunverulegur faðir þeirra, Jack, er í fangelsi þar sem hann afplánar dóm fyrir manndráp af gáleysi. Dag einn býður Andrew þeim Jenny og Mickey með sér í skógarferð þar sem krökkunum býðst að fara á kajökum einum síns liðs niður lygna á sem rennur þar í gegn. Á leiðinni verða þau hins vegar vitni að því þegar hinn miskunnarlausi glæpamaður Tommy fremur morð og verður um leið var við að krakkarnir hafa séð til hans. Þegar systkinin skila sér ekki úr ferðinni á réttum tíma ákveður Jack faðir þeirra að flýja úr fangelsinu og finna þau enda óttast hann að þau séu í lífshættu og reynist sannarlega hafa rétt fyrir sér. Um leið hefst barátta upp á líf og dauða þar sem ekkert er gefið eftir ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Vortex Words + PicturesCA
Rollercoaster EntertainmentCA