Náðu í appið
Zulu

Zulu (2013)

"Sumir glæpir breyta sögunni."

1 klst 50 mín2013

Tveir lögreglumenn rannsaka dularfull morð á tveimur ungum konum og komast að því um leið að málið teygir anga sína mun víðar en þá gat grunað.

Deila:
Zulu - Stikla
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Tveir lögreglumenn rannsaka dularfull morð á tveimur ungum konum og komast að því um leið að málið teygir anga sína mun víðar en þá gat grunað. Zulu er spennumynd með pólitísku njósnaívafi og er um leið dágóð skemmtun fyrir þá sem kunna að meta myndir þar sem fátt er eins og það sýnist í fyrstu. Forest Whitaker leikur Ali Sokhela sem stýrir morðdeild lögreglunnar í höfðaborg þar sem einn af undirmönnum hans er hinn frjálslega þenkjandi Brian Epkeen. Þeir félagar eiga gjörólíka lífsreynslu að baki því á meðan Ali upplifði ofsóknir stjórnvalda á árum aðskilnaðarstefnunnar var fjölskylda Brians ein af þeim sem fyrir ofsóknunum stóðu. Þegar tvær ungar konur finnast myrtar á hrottalegan hátt hefst flókin rannsókn þeirra félaga sem á sannarlega eftir að koma bæði áhorfendum og þeim sjálfum hressilega á óvart ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Jérôme Salle
Jérôme SalleLeikstjórif. -0001
Julien Rappeneau
Julien RappeneauHandritshöfundurf. -0001

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

EskwadFR
M6 FilmsFR
PathéFR
Lobster Tree
W9FR
Canal+FR