Náðu í appið
Bönnuð innan 6 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

The Pretty One 2013

Justwatch

Hvað ef þú værir önnur en þú sjálf?

90 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 50% Critics
The Movies database einkunn 53
/100

Þegar tvíburasystir Laurel lætur lífið ákveður hún að þykjast vera systir sín, segja skilið við sitt eigið líf og taka upp lífsstíl hinnar látnu systur sinnar. The Pretty One er rómantísk kómedía og „feel-good“-mynd með dramatísku ívafi. Hún segir frá eineggja tvíburasystrum sem þrátt fyrir að vera alveg eins í útliti hafa fetað hvor sína brautina... Lesa meira

Þegar tvíburasystir Laurel lætur lífið ákveður hún að þykjast vera systir sín, segja skilið við sitt eigið líf og taka upp lífsstíl hinnar látnu systur sinnar. The Pretty One er rómantísk kómedía og „feel-good“-mynd með dramatísku ívafi. Hún segir frá eineggja tvíburasystrum sem þrátt fyrir að vera alveg eins í útliti hafa fetað hvor sína brautina í lífinu. Á meðan Laurel er enn í heimahúsum og veit ekki hvað hún á að taka sér fyrir hendur er systir hennar, Audrey, flutt til annarrar borgar þar sem hún hefur komið sér ágætlega fyrir og er á hraðri uppleið í lífinu. Dag einn þegar Audrey er í heimsókn lenda þær systur í hörmulegu bílslysi með þeim afleiðingum að Audrey lætur lífið. Þegar Laurel rankar við sér og áttar sig á því hvað hefur gerst ákveður hún að þykjast vera systir sín frekar en hún sjálf ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn