Iceberg Slim: Portrait of a Pimp (2012)
"The jungle creed says the strong must feed on any prey at hand ... I was branded a beast as I sat at the feast before I was a man."
Heimildarmynd um vændissalann Iceberg Slim sem eftir 25 ár í „bransanum“ og fangelsisdvöl vatt sínu kvæði í kross og skrifaði nokkrar metsölubækur.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Heimildarmynd um vændissalann Iceberg Slim sem eftir 25 ár í „bransanum“ og fangelsisdvöl vatt sínu kvæði í kross og skrifaði nokkrar metsölubækur. Robert Lee Maupin fæddist í Chicago árið 1918 og hóf aðeins 18 ára gamall að safna um sig konum á strætum borgarinnar og selja þær í vændi. Hann varð brátt afar stórtækur á þessu sviði og hermt er að hann hafi í allt haft meira en fjögur hundruð konur á sínum snærum, bæði hvítar og svartar. Hann varð þekktur sem „pimp“-kóngur Chicagoborgar og við hann festist viðurnefnið Iceberg Slim vegna þess hversu ískaldur hann var alltaf í framkomu hávaxinn, sterkur og grannur. Árið 1960, eftir að hafa afplánað 10 mánaða fangelsisdóm ákvað Robert hins vegar að segja skilið við vændið, fluttist til Los Angeles og skrifaði á næstu árum nokkrar bækur sem byggðar voru á reynslu hans, en þær urðu afar vinsælar og höfðu gríðarleg áhrif á viðhorf fólks í Bandaríkjunum til vændis ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!









