The Longest Week (2014)
"She had him at - I'm your best friend's girlfriend"
Þegar auðnuleysinginn Conrad Valmont sem verið hefur á framfæri foreldra sinna alla ævi lendir skyndilega peningalaus á götunni verða góð ráð dýr.
Bönnuð innan 14 ára
KynlífSöguþráður
Þegar auðnuleysinginn Conrad Valmont sem verið hefur á framfæri foreldra sinna alla ævi lendir skyndilega peningalaus á götunni verða góð ráð dýr. The Longest Week er fyrsta bíómynd leikstjórans og handritshöfundarins Peters Glanz og í aðalhlutverkum eru þau Jason Bateman, Olivia Wilde og Billy Crudup. Bateman leikur hér auðnuleysingjann Conrad Valmont sem býr á hótelherbergi á hóteli í eigu foreldra sinna og er á þeirra framfæri þótt hann segi öllum að hann sé rithöfundur. Þegar foreldrarnir ákveða að skilja og selja hótelið neita þau bæði að framfleyta Conrad deginum lengur og hann er því skyndilega á götunni. Til að bjarga málunum um sinn leitar hann til vinar síns Dylans sem býður honum húsaskjól. Málin vandast hins vegar þegar Conrad verður ástfanginn af unnustu Dylans, Beatrice ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur




















