10 Rules for Sleeping Around (2013)
"Now It's Our Turn."
Ærslafull gamanmynd um tvö pör sem ákveða að prófa opið samband þar sem þeim er leyfilegt að vera með öðrum svo framarlega sem þau fylgja reglunum.
Bönnuð innan 12 ára
Kynlíf
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
Ærslafull gamanmynd um tvö pör sem ákveða að prófa opið samband þar sem þeim er leyfilegt að vera með öðrum svo framarlega sem þau fylgja reglunum. Þeir Vince og Ben eru gamlir vinir og samstarfsfélagar sem eru að reyna að koma sinni eigin bókaútgáfu á legg og binda miklar vonir við að þekktur barnabókahöfundur geri við þá útgáfusamning. Til að landa þeim samningi þurfa þeir að elta höfundinn til Hampton þar sem sérvitur milljónamæringur býður til villts samkvæmis. Á sama tíma ljóstra Vince og eiginkona hans til margra ára, Cameron, því upp að ástæðan fyrir því að þau eru enn hamingjusöm sé að þau hafi um árabil verið í opnu sambandi þar sem framhjáhald er leyfilegt. Í framhaldinu ákveða Ben og unnusta hans að reyna hið sama, en til að þetta gangi upp þurfa þau að fara eftir reglunum ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur













